Svæðið

Svæðið:

Stutt um Costa Blanca svæðið.

Norðurhluti Costa Blanca svæðisins á Spáni einkennist af miklu fjalllendi og fallegri strandlínu með strandbæjum og fjallaþorpum. Þá einkennir svæðið að byggð er lágreist og stíll "spænskur þú í seinni tíð séu húsin farin að verða evrópskari. Eignir á svæðinu eru einnig oft mun stórar og íburðarmeiri en þekkist á Costa Blanca suður svæðinu. Helstu borgir svæðisins eru Alicante, Murcia og Valencia . Hraðbrautin A7 sem í raun nær alveg frá landamærum Frakklands í norðri og syðsta odda Spánar í suðri tengir Alicante og Valenciu en Murcia er í stuttri fjarlægð á milli þeirra.

Gamli þjóðvegurinn N-332 liggur meðfram allri strandlengjunni og í gegnum flesta strandbæi og borgir sem liggja við Miðjarðarhafið. Það er ótrúleg upplifun að keyra þennan veg og flakka á milli fallegra spænskra bæja og ætti enginn að láta sér það úr hendi sleppa því þarna er upplifun á Spánarlífinu sterk. Bæirnir Denia, Javea, Altea, Calpe og Albir hafa mikla sögu og rómatík.

Mikið gaman er að rölta um götur og stræti í miðbæ þessara gömlu bæja og virða fyrir sér söguminjar, sitja úti eða inni á kaffihúsum og veitingastöðum og draga í sig hinn rólega spænska anda.

Þá sleppir enginn að tala um Benidorm í norðri í um 50 km keyrslu frá Torrevieja og sker hún sig frá öðrum svæðum í kring þar sem borgin er mjög háreist og oft verið kölluð “New York” Evrópu. Benidorm er vinsæll strandstaður í Alicante-héraði á Spáni. Borgin laðar að milljónir ferðamanna á hverju ári þar sem hinar vinsælu sandstrandir eru ásamt líflegu næturlífi og sólríku veðri. Benidorm nýtur meira en 300 sólskinsdaga á ári, með að meðaltali 6 sólskinsstundir á dag á veturna og 11 klukkustundir á sumrin. Úrkoman er lítil, sérstaklega frá maí til september.

Við mælum með:

Fyrir hina kröfuhörðu er LA Finca Resort alveg magnaður staður. Nokkrir glæsilegir veitingastaðir í og við La Finca Golf and Spa Resort auk hins glæsilega klúbbhúss. Hótelið er lágreist 5 stjörnu lúxus hótel og myndar ásamt golfvellinum einskonar miðju La Finca Resort sem einkennist af glæsilegum einbýlum, raðhúsum og nú nokkrum lágreistum fallegum fjölbýlum. Mekka golfarans.

Skoðunarferðir: Að fjárfesta í draumeigninni á Spáni er mikil ákvörðun og því þarf að vandað valið og þar koma til skjalanna okkar fólk sem gjörþekkir svæðið og hvað það hefur upp á að bjóða. Við á Costablancaeignir.is viljum því eindregið mæla með ferð ásamt söluaðilum okkar

Tilhögun skoðunarferða;

Við greiðum ferðakostnað viðskiptavina til baka upp að ákveðnu marki ef eign er keypt gegnum okkar tengsl.

Til að þetta gerist sem best þá fer okkar aðili með kaupandum og skoðar og metur þær eignir sem helst koma til greina. Þegar draumaeignin er fundin fyljum við ykkur eftir eins lengi og þörf er á, allt eftir þörfum hvers og eins!

Bókaðu þína skoðunaferð;